Hnýsni

•júlí 3, 2008 • Rita ummæli

Þekkja má þá forvitnu af nefjunum því af hnýsninni verða þau stundum brún.

Annars ekkert sérstakt í fréttum fyrir alla hina.

Bessastaðakirkja

•maí 16, 2008 • Rita ummæli

Bessastadakirkja

•maí 13, 2008 • 1 ummæli

Ég er stundum hættur að nenna því að kíkja hingað sjálfur, svo lítin áhuga hef ég haft á því að blogga. Ekki fer þó fyrir gúrkutíðinni heldur lítil nenna til að básúna um torg mínu daglega lífi, skoðunum eða tilfinningum.

Þeir hafa verið ansi erfiðir seinustu tveir mánuðir, sérstaklega erfiðir í raun og kannski ástæða þess að ég hef lítið bloggað. Hversu niðurdrepandi yrðu hugleiðingar um svarta framtíð, von um eilífan svefn og frið, lítið geðheilbrigði, atvinnuleysi og einangrun?
En allt það er að baki í bili og sannast það varðandi mig sem Íslending að ekkert er ég án vinnunnar.

Það er varla skrýtið hversu há tíðni sjálfsmorða er á meðal aldraðra karla um leiti er þeir komast á eftirlaun. Eftir áratuga starfsævi sem umlék allt þeirra líf, persónulegt og almennt, fjölskyldu og einstaklings þá hafa þeir allt í einu ekkert að gera við daginn, missa sjálfsmyndina og sitja með hendur í skauti, hendur sem áður höfðu nóg að gera.
Sem betur fer áttar fólk sig líka á því að fleira er hægt að gera við lífið en að vinna það frá sér og horfa sífellt til framtíðar eins og hross með hliðarleppa, ófært um að njóta augnabliksins.

Í gegnum erfiða tíma er mikilvægt að eiga góða að, og enn mikilvægara að ýta þessu fólki ekki frá sér. Ég á það til að framkvæma síðari skömmina þegar lífið verður erfitt, enda sýnir það sig í samskiptum mínum td við bræður mína, í gegnum MSN…

Það er samt ein manneskja sem hefur þrjóskast í gegnum skelina sem myndast hjá mér við þessar aðstæður, manneskja sem sá hjá mér bjartari daga þó ég hafi horft á svartnætti. Hún hefur stutt mig andlega og veraldlega leynt og ljóst til þess eins að hjálpa mér. Og ég nýt þess að vera með henni. Við erum stundum eins og tveir latir kettir nálægt hvoru öðru, mjálmum í sama tón og göngum svipaða leið.

•apríl 8, 2008 • Rita ummæli

pils

Sólarupprás kl. rúmlega átta.

•mars 14, 2008 • Rita ummæli

Eitt lítið tóm
og myrkrið svo mjúkt
áður en nótt dagar uppi
og skýin hátt og snjallt
tilkynna komu sólar.

Eftir rauðum dregli
er lagður er snjóföl
gengur svo sólin með hirð sinni
niður heiðina
og heilsar hneigjandi húsunum.

Súr brandari í boði See Mike Draw.

•mars 13, 2008 • Rita ummæli

LEGO

Það var mikið.

•mars 11, 2008 • Rita ummæli

Ég verð að benda á þessa frétt á mbl.is en samkvæmt henni mun lögreglan beina athygli sinni að skussum í umferðinni sem gefa aldrei stefnuljós, hvort sem þeir skipta um akrein í þéttri umferð, beygja út úr hringtorgi, eða á gatnamótum.
Að gleyma að gefa stefnuljós er gott og blessað, fólk man þá bara næst. En þegar fólk meðvitað virðir þessa sjálfsögðu kurteisi sína við aðra ökumenn að vettugi, þá er það bara orðið kjánalegt, ef ekki hættulegt.

Falinn fáni Ísrael

•mars 5, 2008 • 2 Ummæli

Þessum níð er beint til ríkisstjórnar Ísraels, ráðamanna, hershöfðingja og annarra ódæðismanna sem hafa í rúma hálfa öld sýnt alþjóðasamfélaginu miðfingurinn, gert líf heillar þjóðar Palestínumanna, sinna þegna að hreinasta helvíti með því að gera þá að botnfalli samfélagsins, án grundvallar mannréttinda.

israelflags.jpg

Vatnaskógur

•febrúar 25, 2008 • Rita ummæli

Fyrir tæplega 20 árum sat ég í rútu á leið frá Reykjavík. Við hliðina á mér sat strákur einnig úr Eyjum, Haukur að nafni. Við vorum tveir ásamt stórum hópi krakka á leið inn allan Hvalfjörðin (göngin ekki einu sinni orðin að draumi verkfræðinga og pólitíkusa), út hann aftur og upp í Vatnaskóg. Ferðin virtist endalaus, Hvalfjörðurinn botnlaus og vegurinn leiðinlegur. En við komumst á leiðarenda um síðir og vorum fegin því að stíga úr rútunni.

Sumarið 1988 (man ekki hvaða mánuð) var ein af fjölmörgum vikum tileinkuð okkur börnum og nýorðnum unglingum. Bæði kynin fengu að vera í þetta skiptið í sumarbúðum sem áratugum saman höfðu verið ævintýraland stráka allt frá því séra Friðrik Friðriksson fór þangað með nokkrum stráklingum og fræddi um kristilegt siðferði ásamt því sem útivist, virðing fyrir náttúrunni og að njóta æskunnar og vina var málið.

Þessi ferð mun ekki hverfa úr minningunni, svo skemmtileg var hún, krakkarnir, leikirnir, kojuspjallið fram eftir kvöldi í gamla skála, kvöldkaffið (mjólk og frónkex! :-) ), hópstjórarnir og kvöldvakan í lok þessarar æðislegu viku.
Ekki fór mikið fyrir trúrækninni í þessari ferð eða þeirri sem ég fór í 2 árum áður, en það skipti engu máli, Vatnaskógur snérist og snýst enn um samlyndi, vinskap og virðingu.

Seinustu helgi ók ég þangað í gullfallegu en köldu veðri. Markmiðið var að taka ljósmyndir, skoða sig um og rifja upp góða tíma. Ferðin hófst tæplega hálf fjögur og gekk vel úr borginni og gegnum göngin. Færðin varð aðeins erfiðari þegar kom að veginum inn Hvalfjörðinn enda fáfarin sú leið í dag.

Ég komst á staðinn eftir varlegan akstur og fékk fiðring í hjartað við að sjá gamla skála og hin húsin birtast í gegnum trén. Fátt hafði breyst við fyrstu sýn og ég steig úr bílnum alvopnaður myndavél og helling af rafhlöðum.
Á staðnum voru tveir umsjónarmenn enda nýfarinn hópur af krökkum eftir góða helgi. Annar þeirra var svo góður að opna fyrir mig kapelluna svo ég gæti tekið mynd. Svo fóru þeir á braut og ég gekk áfram um svæðið.

Eftir góða göngu, slatta af ljósmyndum og flakk um fortíðina í huganum lagði ég af stað upp úr skóginum og hélt sem leið lá inn í Hvalfjörðinn. Nú skyldi aka þennan botnlausa fjörð og njóta þess sem yrði fyrir á leiðinni.

Ferðin heim tók heillangan tíma enda vegurinn háll, en það skipti engu máli. Ég var sáttur við að aka þetta á 60-70 kílómetra hraða, gat horft aðeins í kringum mig og stoppað stöku sinnum.

Þegar veðrið verður betra þá mun ég eflaust aka Hvalfjörðinn aftur, skoða Botnsdal og fleiri staði. Allt landið barasta í sumar! :)

Imsomnia

•febrúar 14, 2008 • Rita ummæli

Það er grábölvað að vera andvaka. En þá gerir maður bara eitthvað af sér.
Ég skellti inn tveimur myndum úr vélinni, og tók í leiðinni eftir ákveðnu bloggi sem er tileinkað náttúrunni innan þéttbýlis.
Í nýjustu færslunni þar er m.a. mynd af skógarþresti, tekin af mér. :)

Getið smellt á linkinn fyrir neðan.
http://urbannaturegroup.blogspot.com/

Maður potar sér nú að sumstaðar.