Tímaflakkarinn

Hann leit á klukkuna
og ég líka,
vildum báðir eflaust
vinda tímann hraðar
þar sem við sátum tveir
á biðstofunni

og við biðum áfram,
fingur trommuðu á jakkafaldi
klukkan sló fimm,
og allt í einu sagði hann:
“akkúrat núna, var ég að fæðast”.