Þjóðhátíðarhelgin (verslunarmanna hvað?)
Ég vil byrja á því að óska fólki þolanlegrar þynnku, nóg er af henni í dag. Ef maður gæti nú virkjað þá myglu í hausum og líkömum fólks þá væri maður með næga orku til að lýsa upp Reykjavík. ![]()
Hehe.
Sjálfur átti ég afskaplega góða útivistar og flakk helgi. Fór með tveimur blómarósum Gullfoss og Geysis rúntinn á laugardegi í glimrandi góðu veðri. Við stoppuðum á Þingvöllum, við Laugardalshelli þar sem ábúendur voru allt fram á 20 öldina.
Við áðum á Geysi, fengum okkur að borða, tókum myndir og húðskömmuðum misvitra ljósmyndaratúrista sem bröltu að börmum Geysis sjálfs. Maður hefði ekki spurt að leikslokum ef einhver þeirra hefði dottið ofan í. Soðnar túristalappir einhver?
Eftir Geysisstopp var ferðinni haldið að Gullfossi en frá annari átt en fólk er vant að fara. Vegurinn að svæðinu hinum megin við fossinn er voðalegur, og versnaði bara eftir því sem maður komst nær, enda stöðvaði ég bílinn áður en hann færi að setjast á grjótið. Restina löbbuðum við þó langt væri enn að fara.
En gangan var svo sannarlega þess virði. Útsýnið er stórkostlegt þarna megin við Gullfoss og hrikalegt að sjá gljúfrið sem maður alla jafna sér ekkert af ef maður kemur túristamegin að.
Í gær var það svo bara afslöppun en í dag verður annað á könnunni.
Ég póstaði fáeinum myndum úr ferðinni. Set mun fleiri myndir inn seinna.
Bræður mínir og frændur eru án efa í stórum hópi þreyttra, þunnra en sællra þjóðhátíðargesta sem bíða nú þess eins að jafna sig og komast heim. Ég óska þeim alls hins besta og heiti því að mæta á þjóðhátíð á næsta ári. Já sko ég ætla að panta allt áður en vorið byrjar!

Skildu eftir svar