Óður til morgunfýlunnar

Nóttin er ekkert eins og silkimjúkt flauel sem umvefur þig, amk ekki á morgnanna, enda er líka akkúrat morgunn, en það skiptir ekki máli. Nóttin á þessum tíma ofurstutts dags er eins og kaldur, ljótur og hrjúfur kolamoli sem er grýtt framan í þig svo stuttur svefninn verður að engu.

Þér er sparkað harkalega úr draumalandinu með háværu skerandi pípi sem þú hatar mest af öllu í þessum heimi af því sem þín eyru hafa innbyrt um ævina. Útvarpsvekjarar eru úrillt verkfæri satans.
Þú bröltir framúr en hálfsofandi og ferð hreinlega að grenja innra með því þig langar svo heitt, svo ægilega heitt að skríða aftur undir sæng og kúra til hádegis. En nei nei, vinnan kallar, eða öskrar frekar.

Klukkan er 7:40, mínúturnar hafa liðið of hratt þar sem þú sast í sófanum eftir ræfilslegan morgunnmat sem á eftir að fara illa með meltinguna hjá þér. Smá afslöppun, kannski næstum því kría eftir morgunnmatinn er málið, en það mun aldrei gerast því tíminn er að flýta sér. Þú þarft líka að flýta þér því klukkan er að verða, klukkan er alltaf að verða eitthvað og maður þarf að elta hana eins og hundur í bandi. Vísarnir rykkja síðan reglulega í hálsólina hjá þér og þú neyðist til þess að hlýða þó þú sért að kafna í eigin tímaþröng.

Þú ert í vinnunni, nærri því allir eru jafn ógeðslega myglaðir og þú, sumir enn meira en þú vorkennir þessu fólki ekki neitt, of uptekinn af eigin dróma sem liggur eins og seig drulla yfir huga þínum.
Einstaka morgunnhress manneskja býður alltof hressan góðan dag, í orðum hennar dísæt og viðbjóðsleg gleði, glæpsamlegt. Þú býður voðalega “hressan” góðan dag til baka en morðglampinn í augum þínum kemur upp um þig. En sú morgunnhressa tekur ekki eftir því og trítlar burt.
Þú hugsar baneitruðu morgunmanneskjunni þegjandi þörfina og yljar þér við dagdraum þar sem þú fellir hana er hún valhoppar næst framhjá þér bjóðandi góðan dag með hlandgul blóm í haga, dregur hana að næsta hjalandi kalda ógeðslega morgunnhressa læk og drekkir henni.

~ af gillimann á febrúar 9, 2008.

2 svör to “Óður til morgunfýlunnar”

  1. Þetta hljómar alveg skefilega. Mér finnst alltaf svo gaman að vakna og skil hreinlega ekki í því að það sé hægt að komast í gegnum daginn ef maður leyfir sér að byrja hann illa.

  2. Þetta er eflaust versta byrjun á morgni sem maður getur ímyndað sér.
    Sjálfum finnst mér gott að byrja daginn rólega, án asa og ofurhressleika, bara vakna smátt og smátt, ,,snooza” eða hlusta á BBC í svona hálftíma og síðan á fætur.
    En ég upplifi stundum líka morgna eins og ég lýsti í örsögunni. :P

Skildu eftir svar